Hróarsholt er í Flóanum fyrir austan Selfoss. Það er landið hans Þráins, pabba Karls. Það er grösugt landslag með klettum og móum. Þetta er nýjasta gróðursetningalandið sem við horfum til. Næsta sumar er stefnt að því að koma þar upp stiklingabeðum.
Nú þegar er búið að gróðursetja í Hróarsholti aspir, birki, reyni og baunatré. Búið er að flytja þangað runna af ýmsum tegundum eins og ripsberjarunna, sólberjarunna, stikilsberjarunna og koparreyni. Gróðursettir voru úr heimaræktun, viðjur, alaskavíðir og gulvíðir.
Í tilefni af 60 ára afmæli Þráins 2. ágúst 2007 gróðusettu börn hans og barnabörn nokkrar tegundir trjáa sem eiga í framtíðinni að mynda skógarlund fyrir neðan bústaðinn. Þann lund kallar Þráinn skrautgarðinn. Á táknrænan hátt voru gróðursettar 5 tegundir trjáa fyrir hvert barna hans. Gróðursettar voru kínareynir, fuglakirsi, heggur, gullregn og alpareynir.