Árið 2006
Baklóðin fyrir breytingar. Fyrstu pælingar um breytingar og nýræktun að verða til. Alaskavíðishekkið til vinstri á eftir að vera flutt til Súluvalla og notað þar til að mynda skjólvegg. Fyrsta sumarið var lóðin mosahreinsuð og mosanum hrúgað upp á baklóðinni. Mosinn átti eftir að koma í góðar þarfir til að geyma plöntur í og síðar sem fínn jarðvegur í pottana.
Þessi kofi fylgdi húsinu og var á austurbaklóðinni. Miklar vangaveltur um hvernig hægt væri að nýta hann. Þarna er hann fullur af drasli og inni í honum fannst stórt geitungabú.

Ábúandinn í Stjörnugróf með pælingar um breytingar á baklóðinni. Þar var uppgröftur og órækt eftir byggingu bílskúrsins. Ræktun hafin í einangrunarkössum.