
|

|
| Svona leit baklóðin, að austan ú,t vorið 2007. Pokar fullir af hálfrotnandi grasi bíða eftir því að vera tæmdir í ný runnabeð. |
Kalli mættur á mini-gröfunni. Byrjaður að taka upp Alaskavíðinn sem klippti lóðina í sundur. framundan er mikið verk að grafa út baklóðina. Gamla laut, gamla garðsins, sést í forgrunni. |

|

|
| Búið að grafa baklóðina út. Það var innan við meter niður á harða móhellu. Þurfti ekki að jarðvegsskipta fyrir hellulögn. |
Búið að setja upp uppeldisreit, setja sand í botninn og verið að klæða hann að utan með striga. Til vinstri gömul birkitré og ripsrunni. |

|

|
| Horft í suðaustur. Tvö reynitré, ca. 40 ára greni og birki aftar og svo alaskavíðisrunnarnir sem teknir voru upp og geymdir hér í mosanum góða. Runnarnir bíða flutnings á Súluvelli. |
Horft í norðvestur. Ca. 40 ára gömul birkitré sem fengin voru frá Þingvöllum á sínum tíma. Þar sem sárið er í lóðinni, þar voru alaskavíðisrunnar. Þeir voru fluttir á Súluvelli. |
| |
|
| |
|
| |
|
| |
|