 |
 |
| Baklóðin að austan byrjuð að taka á sig nýja mynd. Búið er að hlaða steinvegg utan um svæðið og steinbeð fyrir runna sem eiga að verða skjóleyja. Hér er steinbeðið hins vegar skjól fyrir uppeldisplöntur í pottum og bökkum. |
Plöntur fluttar til; plöntur úr okkar garði eða plöntur sem aðrir garðeigendur vilja losna við eignast ný heimkynni á Súluvöllum, Hróarsholti eða eða Þingvöllum. |
 |
 |
| Upphaf hellulagnar. Búið er "að taka landið"; þjappa sandinn, leggja línur, ákvarða hallan og hvar skal byrja verkið. Kjartan og Ásdís fylgjast með Kalla. |
Hellulögnin farin að teygja úr sér. Til hægri sést gatið fyrir snúrustaurinn frá pabba, sérpantaður frá Sandblæstri og Málmhúðun á Akureyri. Þeir gera bestu staurana! |
 |
 |
| Það þarf að potta! Upp af fræjum vaxa alltaf upp miklu fleiri plöntur en maður gerir sér grein fyrir. Af þeim á auðvitað eftir að verða afföll en allt gert til að hlúa vel að þeim. |
Sumarblómin hafa náð sér vel á skrið og þau pottuð líka. Kalli pælir í moldinni sem er íblönduð hrossaskít eða blandað í mómold kjötmjöli. Hvernig mold virkar best? Enn á eftir að koma upp safnhaug því við þurfum mikið af mold. |
|
|
| Létum grafa út úr hluta af baklóðinni niður í móhellu. Ekki var nema um meter niður. Moldin ofan á var mjög léleg, sandi blandin. Fylltum upp í með sagblönduðum hrossaskít. Kalli að kurla aspargreinar og kurlið sett yfir runnabeðin. Jafnvel kurlið skaut rótum og fór að vaxa í skítnum.. |
Næst göngustígnum er búið að setja niður komandi skjólrunna. Sést fjærst í Hansarós sem tekin var úr stærri hansarósaruna í garðinum og flutt til. Þarna er líka Gljávíðir (úr Rauðagerði) í geymslu fyrir stiklingatöku og svo stiklingar úr ösp og alaskavíði. |
|
|
| Kalli loksins að ljúka hellulögn sumarsins. Búið að vera tveggja mánaða törn. Hannes barnabarnið fylgist með. |
Hannes og Rún þetta fallega sólríka sumar. Stóra, gamla grenitréð stendur styrkum fótum í garðinum og ein grein þess heldur uppi rólunni. |