Þegar við fórum að leita okkur að húsnæði árið 2005 voru strax hugmyndir um að húsnæðinu þyrfti að fylgja lóð. Karl Óskar fæddist með græna fingur og trjá- og runnarækt er honum í blóð borin. Hann getur líka hugsað í hundrað árum! Ég datt svo inn í þetta áhugamál enda hef ég alltaf haft gaman af að róta í mold. Hins vegar er eðli mitt óþolinmóðara en Karls og því sé ég alfarið um ræktun sumarblómanna og fullnægi þar þörf minni fyrir skjótari árangur.
Þegar við duttum niður á draumahúsið okkar í Stjörnugróf, sá Karl bara lóðina, um 1000 fermetrar en ég útsýnið. Húsið stendur hátt í Fossvogsdalnum og blasir dalurinn við úr risglugganum. Einnig sést langt upp í Árbæ og Breiðholtið. Esjan og Mógarðshnjúkarnir gleðja augað. Síðan hafa hlutirnir þróast. Við fluttum inn í janúar 2006 og fóru vordagarnir í breytingar og málningavinnu innanhúss. Svo tók við mikil vinna við að hreinsa upp alla útveggi og mála svo húsið að utan. Vinna sem átti að taka ca. þrjár vikur tók allt sumarið. Góður tími fór í að pæla í lóðinni á meðan.
Garðurinn hefur verið í ræktun áður fyrr. Ramma utan um hann mynda röð birkitrjáa og inn á milli er skógviðarbróðir (blendingur birkis og fjalldrapa). Þessi tré eru 30-40 ára gömul og hafa upprunalega komið frá Þingvöllum. Samkvæmt nágranna mínum, þá var algengt hér áður fyrr, að fá plöntur frá Þingvöllum. Einnig eru í garðinum þrjú stór álíka gömul grenitré. Um þau erum við hjón ekki sammála. Vissulega skyggja þau mikið á garðinn. í dag er fólk farið að vara sig á að planta svona trjám of nálægt húsi. Þá gerði fólk sér kannski ekki grein fyrir að tré geta orðið há á Íslandi. En þar sem ég er svo meðvituð um að það tekur tré mörg ár að vaxa á Íslandi þá er ég viðkvæm fyrir því að höggva þau niður. Mér finnst notalegt að heyra hvininn í þeim í vindinum, þau skyggja á iðnaðarhverfið við Smiðjuveginn og ég þarf ekki alltaf að horfa á rautt áberandi ljósaskilti Sólningar. Þau veita skjól. Nágranni minn sem búið hefur í hverfinu í um 35 ár talar um vindinn sem lagði alltaf yfir holtið þar sem Smiðjuvegurinn liggur nú. Hús og gróður hafa breytt skilyrðunum svo nú er skjólsælla í hverfinu. Síðast en ekki síst er notalegt að hengja upp í sterkar greinar barnarólu eða hengirúm. Gerður var samningur um að láta þessi tré standa enn um sinn. Það er mikil vinna að breyta þessum garði og fyrsti áfanginn er austurhluti baklóðarinnar.
Það er merkilegt að tré skulu yfir höfuð vaxa svona vel þarna því jarðvegurinn er afarrýr. Það er ekki nema um meter niður á grótharða móhellu, leifar frá síðasta jökulskeiði. Þá er ca. hálfsmetra lag af möl frá því ströndin lá í þessari hæð og þar ofan á kemur svo ca. hálfsmetra þykkt moldarlag. Rætur trjánna liggja líka á yfirborðinu.
Í garðinum var einnig að finna reynitré, ripsrunna, snjóberjarunna og hansarós með einföldum blómum. Einhverntíma hefur verið þarna laut undir runna, römmuð inn af hraunsteinum. Gróið var að mestu yfir þessa hraunsteina en þeir komu í ljós þegar farið var að umbylta lóðinni.